Til­kynna slit

Ef grafið er í ljósleiðaralögn svo slit verður á lögninni er mjög mikilvægt að tilkynna það strax.

Fylltu út í formið með upplýsingum um heimilisfang og hvað var verið að framkvæma. Sendu okkur endilega mynd af slitinu í viðhengi.

Afleiðingar þess að grafa í Ljósleiðara innan lóðar

Ljósleiðarinn liggur inni í röri sem grafið er niður í jörð. Oft liggja fleiri en ein Ljósleiðaralögn saman í einum og sama lagnaskurðinum, s.s. mögulega bæði fyrir þig og nágranna. Ef ljósleiðarinn inni í rörinu rofnar/slitnar þá er nauðsynlegt að lagfæra rörið sem gamli ljósleiðarinn lá í. Þar á eftir þarf að skipta um ljósleiðarann í heild sinni ásamt því að bræðisjóða hann bæði inni í inntaki húss og næsta tengipunkti úti í götu. Sú vegalengd sem blása þarf nýjum ljósleiðara frá húsi og út að næsta tengipunkti ræðst alfarið af tengipunkti sem næstur er fyrir viðkomandi tengingu. Almennt eru þetta u.þ.b. 100-500 metrar að meðaltali, en getur þó farið alveg upp í 2,5 – 3 km utan höfuðborgarsvæðis.

Eins og gefur að skilja geta þetta verið mjög dýrar lagfæringar og jafnframt tímafrekar og ekki víst að hægt sé að ráðast í lagfæringu um leið og slit verður. Því gæti viðskiptavinur þurft að þola rof á heimilistengingu sinni fram að næsta virka degi eða jafnvel lengur ef veðurfar hamlar framkvæmdum.

Besta ferlið fyrir þann sem ætlar að ráðast í framkvæmdir á lóð sinni væri að óska eftir teikningum á sinni lóð á hér en á virkum dögum er slíkum beiðnum að jafnaði svarað samdægurs. Með teikningunum er hægt að staðsetja ljósleiðaralögn sem liggur um lóð með u.þ.b. eins metra návæmni eða 50cm í hvora átt út frá lögn, þetta er þó ekki algilt.

Best er svo að grafa varlega með handafli ofan af lögn á einum stað og staðfesta með því hvernig lögnin liggur og vera þá með vitneskju um dýpt og réttleika lagnaleiðar. Út frá því er hægt að ákvarða hvernig er best að bera sig að í kringum lögnina áður en framkvæmdir hefjast.

Ef mikill vafi leikur á því hvernig skal bera sig að er hægt að hafa samband við eftirlit@ljosleidarinn.is og óska eftir því að fá útsetta hnitpunkta lagnarinnar og ráðleggingar í kringum framkvæmd. ATH að nokkrir dagar geta liðið frá beiðni þar til að tími gefst fyrir eftirlitsmann til að komast til þín. Biðtími getur verið milli þrír og sjö dagar frá beiðni en að sjálfsögðu er reynt eftir fremsta megni að koma sem fyrst.

Við vekjum athygli á því að tjón á fjarskiptalögnum er alfarið á ábyrgð tjónvalds út frá fjarskiptalögum.