Upp­lýs­inga­tækni­stefna

Ljósleiðarinn lítur á upplýsingatækni sem mikilvægan þátt í að styðja við rekstur fyrirtækisins. Upplýsingatæknistefnan varðar uppbyggingu og rekstur á gagnaflutningskerfi Ljósleiðarans sem er grunnþáttur í virðiskeðju fyrirtækisins. Ljósleiðarinn leitast við að nýta bestu upplýsingatækni á hverjum tíma í starfsemi fyrirtækisins þar sem kerfi, þjónusta og tækninýjungar skulu vera öflug stoð við þau markmið sem fyrirtækið hefur sett sér.

Gagnaöryggi er jafnframt mikilvægur þáttur og er lögð áhersla á áreiðanlegar upplýsingar sem nýttar eru til stýringar, þjónustu og ákvarðanatöku.

Það er stefna Ljósleiðarans í upplýsingatækni að:

  • byggja upp og reka opið gagnaflutningsnet þar sem upplýsingatækni er hagnýtt til að virkni netsins sé stýrð sem mest af notendum og/eða fjarskiptafyrirtækjum
  • kerfi og gögn séu áreiðanleg, aðgengileg og örugg
  • heildaryfirsýn á upplýsingatækni sé á einum stað
  • rekstur upplýsingatækni sé eins hagkvæmur og kostur er
  • notendur upplýsingatækni hafi greiðan aðgang að þjónustu sem taki mið af þörfum þeirra hverju sinni
  • styðja við frumkvæði og nýsköpun

Upplýsingatæknistefna Ljósleiðarans byggir á gildum og heildarstefnu Ljósleiðarans og er sett fram til samræmis við eigendastefnu Orkuveitunnar.