Sjálf­bærni­stefna

Sjálfbærnistefnan er skuldbinding Ljósleiðarans um að sýna umhverfinu, auðlindum og samfélagi virðingu. Í því skyni eru viðhafðir vandaðir stjórnarhættir, sem miða að stöðugum umbótum. Stefnan er grundvöllur farsælla ákvarðana og góðs samstarfs sem byggist á gegnsæi í upplýsingagjöf. Ljósleiðarinn kallar eftir skoðunum hagsmunaaðila á því hvort starfsemi félagsins sé sjálfbær og bregst við ábendingum með ábyrgum hætti. Sjálfbærnistefnan byggir á gildum Ljósleiðarans – frumkvæði, framsýni, hagsýni og heiðarleika – og er sett fram til samræmis við leiðarljós eigendastefnu Orkuveitu Reykjavíkur.

Sjálfbærnistefnan er sett fram með eftirfarandi áherslum sem fylgt er eftir með skilgreiningu þýðingarmikilla sjálfbærniþátta. Móðurfélagið veitir faglegan stuðning og mótar sjálfbærnimarkmið fyrir samstæðuna í heild.

Loftslag og loftslagsáhætta

Ljósleiðarinn nýtir bestu viðmið við mælingu kolefnisspors síns og stefnir á vottað nettó-núll kolefnisspor eigin starfsemi árið 2030 og einnig vegna aðfangakeðju starfseminnar árið 2040. Þannig minnkar kolefnisspor samfélagsins alls.

Jafnframt er viðnámsþróttur samfélagsins efldur með aðlögun þjónustukerfanna að loftslagsbreytingum.

Ljósleiðarinn vinnur eftir eigin markmiðum og stýrir sinni loftslagstengdu áhættu.

Ábyrg landnotkun

Ljósleiðarinn skuldbindur sig til þess að leita farsælla lausna þar sem landnotkun  er vegin og metin í samhengi við aðra hagsmuni, þar með talinn líffræðilegan fjölbreytileika.

Viðskiptavinir

Ljósleiðarinn gerir sér grein fyrir því að þjónusta samstæðunnar er undirstaða lífsgæða í samfélaginu. Aðgangur að kerfum Ljósleiðarans stuðlar að lífsgæðum fólks og tækifærum til umhverfisvænnar starfsemi. Hnökralaus þjónusta Ljósleiðarans, á samkeppnishæfu verði, er því lykilatriði.

Losun og hringrás

Ljósleiðarinn vill vera góð fyrirmynd. Ljósleiðarinn dregur úr losun mengandi efna eins og kostur er og leggur áherslu á að geta nýtt bestu mögulegu lausnir þar sem hringrásarhugsun er í forgangi.

Góður samfélagsþegn

Ljósleiðarinn beitir áhrifum í virðiskeðjunni þar sem hvatt er til ábyrgrar umgengni við umhverfið, ábyrgrar neysluhegðunar og jákvæðra áhrifa á mannréttindi.

Ábyrgir starfshættir

Sem fyrirtæki í almannaþjónustu og almannaeigu skiptir máli að Ljósleiðarinn sé til fyrirmyndar, m.a. um stjórnarhætti. Ljósleiðarinn stuðlar að menningu þar sem virðing ríkir í samskiptum milli starfsfólks á öruggum og inngildandi vinnustað.

Ljósleiðarinn hlítir öllum ákvæðum laga og reglugerða sem um starfsemina gilda.

Þýðingarmiklir sjálfbærniþættir

Ljósleiðarinn hefur skilgreint eftirfarandi sjálfbærniþætti sem þýðingarmikla með hliðsjón af þeim meginreglum sem fram koma í sjálfbærnistefnunni. Ljósleiðarinn setur sér markmið um þessa þætti og skilgreinir ábyrgð:

Loftslag og loftslagsáhætta:

  • Losun og losunarkræfni gróðurhúsalofttegunda eftir umfangi 1, 2 og 3 og binding gróðurhúsalofttegunda.
  • Viðnámsþol gagnvart loftslagsbreytingum

Ábyrg landnotkun:

  • Líffræðilegur fjölbreytileiki og vistkerfi á eignarlandi og athafnasvæðum
  • Varkár umgengni á vatnsverndarsvæðum

Viðskiptavinir:

  • Áreiðanleiki fjarskiptakerfa
  • Ánægja viðskiptavina

Losun og hringrás:

  • Úrgangur

Góður samfélagsþegn:

  • Miðlun þekkingar
  • Sjálfbær innkaup
  • Afstaða almennings til vörumerkis

Ábyrgir starfshættir:

  • Kynbundinn launamunur
  • Helgun starfsfólks
  • Vinnuslysatíðni
  • Gegnsæ skýrslugjöf samkvæmt viðurkenndum viðmiðum