Örygg­is- og heilsu­mál

Öryggis- og heilsumál eru alltaf í forgrunni hjá Ljósleiðaranum. Ekkert verk er svo mikilvægt að hætta megi öryggi fólks við framkvæmd þess.

Ljósleiðarinn er til fyrirmyndar í öryggis- og heilsumálum og einsetur sér að  vernda og bæta líf þeirra sem starfa fyrir félagið  með því að skapa slysalausan vinnustað þar sem ekkert starfsfólk, verktakar eða aðrir bíði heilsutjón vegna starfseminnar.

Öll sem starfa fyrir Ljósleiðarann eru ábyrg fyrir eigin öryggi, tala fyrir auknu öryggi samstarfsfólks og leitast við að koma auga á, meta og stjórna áhættum í vinnuumhverfinu.

Fyrirtækið vinnur markvisst að því að:

  • Áhættur í hverju verki séu ávallt undir stjórn
  • Skrá atvik og ófullnægjandi aðstæður, greina orsakir og gera umbætur
  • Bæta ferla og verklýsingar til að samræma og viðhafa bestu og öruggustu vinnubrögð
  • Efla öryggis- og heilsuvitund starfsfólks og verktaka með upplýsingagjöf og þjálfun
  • Stjórnendur staðfesti með úrtakseftirliti og stuðningi á verkstað að unnið sé samkvæmt verkferlum og að áhættum sé stýrt

Stefna í öryggis- og heilsumálum byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og er sett fram til samræmis við eigendastefnu fyrirtækisins.

Ljósleiðarinn uppfyllir kröfur í formi laga, reglna og reglugerða um öryggis- og heilbrigðismál.

>