Mannauðs-, örygg­is- og heilsu­stefna Ljós­leið­ar­ans

Ljósleiðarinn er eftirsóknarverður vinnustaður þar sem hæft og ánægt starfsfólk sinnir samfélagslega mikilvægum verkefnum í framsæknu og sveigjanlegu starfsumhverfi. 

Við byggjum á árangursmiðaðri og fjölbreyttri liðsheild og saman berum við ábyrgð á að skapa menningu þar sem metnaðarfullt starfsfólk hefur burði til að mæta fjölbreyttum áskorunum og fær tækifæri til að vaxa.  

Við tryggjum jafnrétti í inngildandi starfsumhverfi sem einkennist af virðingu og jöfnum tækifærum.  

Við leggjum ríka áherslu á að vernda og efla velferð starfsfólks.  Öll berum við ábyrgð á að koma auga á, meta og stýra hættum í vinnuumhverfinu. Ekkert verk svo mikilvægt eða áríðandi að hætta megi öryggi og heilsu fólks. 

Mannauðs-, öryggis- og heilsustefna Ljósleiðarans byggir á gildum og heildarstefnu Orkuveitunnar og er sett fram til samræmis við eigendastefnu fyrirtækisins. 

Lykiláherslur mannauðs-, öryggis- og heilsumála 

  • Jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding 
  • Heilsa, öryggi, vellíðan 
  • Þróun hæfni til framtíðar 
  • Árangursmiðuð liðsheild

Jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding 

Við framkvæmum jafnrétti. Fjölbreytileikinn er styrkur okkar og saman byggjum við inngildandi starfsumhverfi þar sem öll eiga rétt á að tilheyra, vaxa, hafa rödd og njóta trausts.  

  • Einelti, áreitni eða ofbeldi er aldrei liðið og það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að koma í veg fyrir slíkt 
  • Stjórnendur bera ábyrgð á því að framkvæma jafnrétti 
  • Við erum forystuafl fjölbreytileika og óhrædd við að ögra viðteknum hefðum 

Heilsa, öryggi, vellíðan 

Við eflum öryggi og heilsu með því að eyða hættum, læra af atvikum, vera sýnileg á verkstað og bjóðum markvissan stuðning við heilsu og heilbrigði starfsfólks 

  • Við styðjum við vellíðan og heilbrigðan lífsstíl með góðri aðstöðu og  forvörnum  
  • Við stýrum áhættum í hverju verki og sköpum öruggt vinnuumhverfi 
  • Við skráum atvik, greinum, lærum og notum niðurstöður til umbóta 
  • Við sýnum stuðning á verkstað,  þar sem stjórnendur ræða við starfsfólk, hlusta á þeirra reynslu og hjálpa til við að finna lærdóm og lausnir 

Við uppfyllum kröfur í formi laga, reglna og reglugerða um öryggis- og heilbrigðismál

Þróun hæfni til framtíðar 

Starfsfólk fær tækifæri til að vaxa, sýna frumkvæði og nýta hæfileika sína til að knýja áfram framþróun í starfseminni sem og samfélaginu öllu. Með framsýnni forystu og fjölbreyttum starfsþróunarleiðum sköpum við lærdómsmenningu til að takast á við áskoranir framtíðarinnar.  

  • Við kortleggjum hæfniþörf og tengjum við persónulegan vöxt, stefnu og framtíðaráskoranir 
  • Við hvetjum til ábyrgðar og frumkvæðis þegar kemur að lærdómi og vexti 
  • Við byggjum upp lærdómsumhverfi og grípum tækifæri til nýsköpunar  

Árangursmiðuð liðsheild 

Við vinnum sem ein liðsheild. Menningin okkar styður við fagmennsku, skilvirk vinnubrögð og sveigjanleika til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni.  

  • Við treystum starfsfólki til að takast á við verkefni af ábyrgð og frumkvæði  
  • Við leggjum áherslu á opið samtal, uppbyggilega endurgjöf og sýnilegan árangur 
  • Við byggjum árangursmiðaða liðsheild á trausti, skýrum væntingum og samstilltu framlagi starfsfólks 
  • Við sköpum starfsfólki aðstæður til að samræma kröfur milli vinnu og annarra þátta lífsins