1. Tilgangur og umfang
Að lýsa hlutverki ritara stjórnar og tilnefningu hans.
2. Ráðning ritara stjórnar
Stjórn ræður sér ritara úr starfsliði samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur. Ritari stjórnar skal hafa þekkingu og yfirsýn yfir lög og reglur sem gilda um félagið, samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur og starfsemi þeirra. Einnig skal ritari hafa góða þekkingu á góðum stjórnarháttum.
2.1 Helstu verkefni ritara stjórnar
Ritari sér um að boða fundi í samráði við stjórnarformann og framkvæmdastjóra í samræmi við starfsáætlun stjórnar.
Ritari skal aðstoða stjórn við að útbúa og uppfæra starfsreglur stjórnar og útbúa drög að starfsáætlun stjórnar og fundardagskrá í samráði við stjórnarformann og framkvæmdastjóra.
Ritari sér til þess að fundargögn séu gerð aðgengileg stjórnarfólki tímanlega fyrir stjórnarfundi og að þau séu vistuð með viðeigandi hætti.
Ritari skal rita fundargerð um það sem gerist á stjórnarfundum og um ákvarðanir stjórnar.
Ritari fylgist með að stjórnin starfi í samræmi við lög og reglur sem gilda um félagið og samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur og er ráðgjafi hennar í þeim efnum.
Í þeim tilvikum sem tillaga stjórnar skal hljóta samþykkis hluthafafundar, skal ritari stjórnar sjá til þess að erindið berist til eiganda og fylgja því eftir.
Ritari skal vera ráðgjafi stjórnar um góða stjórnarhætti