Fund­ar­gerðir

1. Tilgangur og umfang

1. Að lýsa ritun og frágangi fundargerða stjórnar.

2. Fundargerðir og fundargerðabók

Haldnar skulu fundargerðir um það sem gerist á stjórnarfundum og um ákvarðanir stjórnar. Fundargerðir skulu vistaðar í skjalavistunarkerfi Ljósleiðarans og vera aðgengilegar stjórn þar.

Í fundargerðabók skal skrá eftirfarandi:

Hvar og hvenær fundurinn var haldinn.

Númer stjórnarfundar.

Hverjir sátu fundinn og hver stýrði honum.

Dagskrá fundarins.

Fundargögn sem voru afhent eða sýnd á fundinum.

Fyrirspurnir stjórnarfólks sem lagðar voru fram á fundinum.

Stutta skýrslu um umræður á fundum og hvaða ákvarðanir voru teknar.

Hvort og hvenær utanaðkomandi aðilar komu inn á fundinn og hvenær þeir fóru út af fundinum.

Hvenær og hvar næsti stjórnarfundur verður haldinn.

Hver hafi ritað fundargerðina.

2.1 Bókanir

2. Stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri eiga rétt á að koma afstöðu sinni á framfæri með stuttri bókun í fundargerð. Bókun skal lögð fram áður en fundi er slitið.

2.2 Frágangur fundargerða

Fundargerð skal undirrituð af þeim er fund sitja þ.m.t. af ritara stjórnar og framkvæmdastjóra. Fundargerðir teljast full sönnun á því sem gerst hefur á stjórnarfundum. Stjórnarfólk, framkvæmdastjóri og ritari stjórnar, sem ekki voru viðstödd þann stjórnarfund sem fundargerð tekur til skulu staðfesta að þau hafi kynnt sér fundargerðina með undirritun sinni.

Í kjölfar fundar skulu drög að fundargerð send stjórn til rýni. Berist ekki efnislegar athugasemdir skulu drögin borin upp til samþykktar í upphafi næsta reglulega fundar.

Samþykkar fundargerðir stjórnar skulu sendar eiganda innan 5 daga frá undirritun sé því komið við.