Vilt þú taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Ljósleiðarans?

18. nóvember 2026

Við erum að bæta í hópinn hjá Ljósleiðaranum og leitum að tveimur öflugum einstaklingum til liðs við okkur. Tvö spennandi störf eru laus innan sölu og viðskiptaþróunar þar sem tækifæri gefst til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun fyrirtækisins. Hjá okkur færðu tækifæri til að takast á við krefjandi og spennandi verkefni í ört vaxandi umhverfi ásamt því að vaxa og þróast innan fyrirtækisins.

Viðskiptastjóri

Ljósleiðarinn rekur ljósleiðarainnviði um allt land og þjónustar fjarskiptafélög, fyrirtæki og stofnanir. Áframhaldandi uppbygging og vaxandi eftirspurn kalla á öflug viðskiptasambönd og lausnir sem mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina.

Nýr viðskiptastjóri mun gegna lykilhlutverki í að skapa ný viðskiptatækifæri, efla tengsl við núverandi viðskiptavini og þróa lausnir á ört vaxandi markaði og býður starfið þannig upp á tækifæri til að hafa bein áhrif á áframhaldandi vöxt og árangur Ljósleiðarans.

Gagnasérfræðingur – gögn og gervigreind

Ljósleiðarinn býr yfir verðmætum gögnum um ljósleiðaranetið, tengingar og þjónustu um allt land og gögn og gervigreind gegna sífellt stærra hlutverki í þróun og rekstri fyrirtækja. Ljósleiðarinn vill nýta þau tækifæri enn betur. Með því að nýta þessi gögn á markvissan hátt má bæta þjónustu við viðskiptavini, auka skilvirkni og skapa ný tækifæri í rekstri. Því leitum við nú að reyndum gagnasérfræðingi til að styrkja teymi Sölu og viðskiptaþróunar enn frekar.

Nýr gagnasérfræðingur mun taka þátt í uppbyggingu gagnainnviða og þróun lausna sem byggja á gögnum, gervigreind og sjálfvirknivæðingu. Í starfinu er því svigrúm til að sameina tæknilega þekkingu og nýsköpun og hafa bein áhrif á hvernig Ljósleiðarinn nýtir gögn og nýja tækni til framtíðar.

 

Við hvetjum áhugasöm til að kynna sér störfin og sækja um. Skoðaðu störfin og sæktu um hér. Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember 2026.

Ljósleiðarinn byggir upp og rekur ljósleiðaranet fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Með þéttu neti ljósleiðaraþráða tryggir Ljósleiðarinn hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar. Þannig gerum við allt mögulegt mögulegt.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.