Vilt þú stýra Sölu og þjónustu hjá Ljósleiðaranum?

4. febrúar 2026

Hjá Ljósleiðaranum erum við að stíga markvisst skref inn í næsta vaxtarskeið. Skref sem snýst um að styrkja tæknilega framtíðarfærni, skerpa ábyrgð og byggja enn betri þjónustu fyrir viðskiptavini okkar.

Sem hluti af þeirri vegferð höfum við sameinað krafta okkar í nýju sviði, Stafræn þróun og netrekstur, sem mun leiða áframhaldandi stafræna umbreytingu Ljósleiðarans. Valeria Alexandersdóttir sem gegndi hlutverki Forstöðukonu Sölu og þjónustu hefur tekið við forystu nýja sviðsins. Því leitum við nú að forstöðukonu/-manni Sölu og þjónustu.

Forstöðukona/maður Sölu og þjónustu leiðir öflugt teymi sem sinnir viðskiptastýringu, sölu og þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina og hefur áhrif á hvernig viðskiptasambönd og þjónusta Ljósleiðaranas þróast til framtíðar. Forstöðumanneskjan situr jafnframt í framkvæmdastjórn Ljósleiðarans og tekur virkan þátt í stefnumótun og sókn félagsins.

Við leitum að manneskju sem hefur náð umtalsverðum árangri í stjórnunarhlutverki, hefur næmt auga fyrir sölutækifærum og þjónustuferlum og nýtur þess að vinna með fjölbreyttum hópi fólks. Mikilvægt er að vera lausnamiðuð, með sterka samskiptafærni og með áhuga á að efla þjónustu og nýta stafrænar lausnir til að bæta upplifun viðskiptavina.

Hér getur þú lesið nánar og sótt um starfið.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.