Vel heppnað útboð Ljósleiðarans á grænum skuldabréfum

1. apríl 2022

Útboð Ljósleiðarans á grænum skuldabréfum, sem lauk í gær, tókst vel og stuðlar að því að fjármagnskostnaður fyrirtækisins fari áfram lækkandi. Skuldabréfin eru verðtryggð til 20 ára með lokagjalddaga í júní 2041.

Niðurstaða útboðsins, sem bundið var við fagfjárfesta, var sú að tilboð bárust að nafnvirði 3,3 milljarða króna með ávöxtunarkröfuna 1,30 til 1,56%. Tilboðum að nafnvirði 2,1 milljarða króna var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,49%. Stærð skuldabréfaflokksins nemur nú 8,2 milljörðum króna.

Unnið er að skráningu bréfanna á Nasdaq Ísland og vonir bundnar við að skráningarferlinu ljúki á næstu vikum.

Þetta er annað útboð Ljósleiðarans á grænum skuldabréfum á grundvelli ramma sem kynntur hefur verið fjárfestum og birtur opinberlega. Ramminn hefur hlotið óháð mat sem „dökkgrænn“. Bréfin hafa hlotið góðar viðtökur hjá fjárfestum og andvirði þeirra er hvorttveggja nýtt til nýrra grænna fjárfestinga í ljósleiðarakerfi fyrirtækisins og endurfjármögnunar lána vegna fyrri uppbyggingar.


Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðaran

Það er mjög hvetjandi að sjá þetta traust sem markaðurinn hefur á Ljósleiðaranum, verkefnum hans og framlagi til umhverfisins og betra samfélags. Við höfum kynnt fjárfestum metnaðarfull áform okkar um áframhaldandi uppbyggingu fjarskiptanets Ljósleiðarans og öfluga þátttöku í að ná markmiði íslenskra stjórnvalda um Ísland fulltengt. Fyrir utan nýbyggingarhverfi í þeim byggðarlögum sem við höfum þegar lokið við að fulltengja, erum við þessa dagana að tengja nýja viðskiptavini í Reykjanesbæ, þá taka Vogar við ásamt Stokkseyri og Eyrarbakka í Árborg. Samhliða erum við að leggja nýjan burðarmikinn streng með Suðurströnd landsins í framhaldi af viðbragði okkar við eldgosinu á Reykjanesskaganum fyrir rétt rúmu ári. Hann mun tengjast nýjum sæstreng Farice, sem kemur á land við Þorlákshöfn í Ölfusi. Samfélagið okkar er að þróast býsna hratt og örugg og góð fjarskipti leika sífellt stærra hlutverk í atvinnulífi og mannlífinu öllu. Ljósleiðarinn á stóran þátt í að Íslendingar eru á meðal best tengdu þjóða og við ætlum að vera á þeim stað áfram.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.