Nýr framkvæmdastjóri Ljósleiðarans

31. ágúst 2023

Stjórn Ljósleiðarans hefur ráðið Einar Þórarinsson í starf framkvæmdastjóra félagsins. Einar sem býr yfir rúmlega tuttugu ára reynslu sem stjórnandi kemur til félagsins frá Sidekick Health en þar áður starfaði hann m.a. hjá Advania og Vodafone.

„Ljósleiðarinn er öflugt félag með jákvæða ásýnd og stendur á tímamótum um þessar mundir sem kallar á töluverðar breytingar hjá félaginu á næstu misserum, bæði í sölustarfi og uppbyggingu, rekstri og eftirliti með virkum innviðum um allt land,“ segir Einar.

„Að auki liggur fyrir að efla fjárhagslegan styrk félagsins og breytingar á eignarhaldi í því samhengi til að fá inn fé til uppbyggingarinnar sem og að takast á við verðugan keppinaut sem er kominn í erlenda eigu.“

Einar sem er með B.Sc. gráðu í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík starfaði m.a. sem forstöðumaður rekstrar og upplýsingaöryggis hjá Vodafone auk þess sem hann leiddi upplýsingatæknimál félagsins. Þá var hann forstöðumaður þjónustu hjá Advania og síðar framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála. Frá árinu 2021 hefur Einar starfað hjá heilsutæknifyrirtækinu Sidekick Health þar sem hann hefur borið ábyrgð á vörumótun og þróun miðlægs hluta tæknilausnarinnar, ásamt því að leiða skipulagningu á tæknilegum rekstri og innviðum.

„Ég tel að reynsla mín af öguðum rekstri, upplýsingaöryggismálum og sjálfvirkum ferlum, ásamt umbreytingum og stefnumiðaðri uppbyggingu muni reynast Ljósleiðaranum vel. Ég mun koma með ný sjónarhorn inn í félagið en mæti um leið með staðgóða þekkingu og skilning á markaðnum sem félagið starfar á.“

Birna Bragadóttir stjórnarformaður Ljósleiðarans er afar ánægð með komu Einars til Ljósleiðarans.

„Það eru virkilega spennandi tímar framundan hjá okkur Ljósleiðarafólki og ég er sannfærð um að Einar muni leiða fyrirtækið áfram í rétta átt. Hann býr yfir mörgum kostum sem einkenna góðan stjórnanda og hefur á sínum starfsferli tekist á við fjölbreytt ábyrgðarsvið svo sem á sviði rekstrar, þjónustu, markaðs- og sölumála og upplýsingatækni í víðtækum skilningi. Þetta eru atriði sem við hjá Ljósleiðaranum horfum til og munu skipta sköpum í komandi vegferð.“

Stefnt er að því að Einar hefji störf eigi síðar en 1. október n.k.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.