Ljósleiðarinn hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

15. október 2026

Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA.

Í gær tóku Þuríður Guðnadóttir, framkvæmdastýra Ljósleiðarans, og Harpa Sjöfn Lárusdóttir, mannauðsleiðtogi Ljósleiðarans, við viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar til Ljósleiðarans fyrir að hafa náð markmiðum verkefnisins um jafna kynjaskiptingu í efsta lagi stjórnunar. Orkuveitan, Veitur og Carbfix hlutu jafnframt viðurkenningu fyrir sama árangur.

Viðurkenningin skiptir okkur miklu máli. Jafnrétti og fjölbreytileiki gerast ekki af sjálfu sér heldur krefjast meðvitaðra ákvarðana og stöðugrar vinnu.

Þuríður, framkvæmdastýra Ljósleiðarans, segir: „Við erum mjög stolt af þessari viðurkenningu. Hún sýnir að markviss vinna að jafnrétti og fjölbreytileika skilar árangri, en um leið minnir hún okkur á að jafnvægi er ekki sjálfgefið. Við þurfum stöðugt að huga að því hvernig við sköpum vinnustað þar sem fólk hefur jöfn tækifæri til að vaxa, láta til sín taka og taka að sér leiðtogahlutverk. Það ætlum við svo sannarlega að halda áfram að gera hjá Ljósleiðaranum“.

Ljósleiðarinn fagnar því árangrinum en við vitum líka að jafnrétti er ekki staða sem hægt er að haka við og telja verkefninu lokið. Árið 2025 voru aðeins 21% framkvæmdastjóra á Íslandi konur en framfarir hafa jafnframt verið hægar því árið 2015 voru 18% framkvæmdastjóra á Íslandi konur. Viðurkenningin er því mikilvæg staðfesting á þeirri vinnu sem hefur farið fram innan fyrirtækisins en jafnframt hvatning til að halda áfram og gera enn betur.

Jafnvægisvogin hefur undanfarna mánuði staðið fyrir herferðinni Losum um hnútinn, þar sem fyrirtæki og leiðtogar eru hvött til að skoða hvaða hindranir kunna að standa í vegi fyrir fjölbreytileika og jöfnum tækifærum. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar sem er móðurfélag Ljósleiðarans, er eitt af andlitum herferðarinnar og við erum stolt að tilheyra fyrirtæki sem tekur slíkan þátt í jafn mikilvægum verkefnum og þessum. Í tilefni viðurkenningarhátíðarinnar í gær mætti starfsfólk Ljósleiðarans með bindi til vinnu og losaði um hnútinn til að vekja athygli á ójöfnum kynjahlutföllum í stjórnunarstöðum og framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi.

Ljósleiðarinn mun halda áfram að vinna markvisst að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu og tryggja að ólíkar raddir fái að heyrast.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.