Ljósleiðarinn býður þér TÍU GÍG til framtíðar
13. september 2023
13. september 2023
Öllum þeim sem geta tengst Ljósleiðaranum gefst nú tækifæri á að tífalda hraða sinn frá og með 1. október n.k. Með þessu er Ljósleiðarinn að horfa til þeirrar þróunar sem er að eiga sér stað og undirbúa heimilin í landinu fyrir framtíðina. Hámarkshraði í boði um Ljósleiðarann verður frá og með 1. október 10 gígabitar en var áður 1 gígabiti og verður í boði hjá öllum fjarskiptafélögum á öllu þjónustusvæði Ljósleiðarans.
Dagný Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Ljósleiðarans:
„Ljósleiðarinn leggur áherslu á að tryggja hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að tækifærum framtíðarinnar. Við vorum fyrsta fyrirtækið sem bauð upp á 1 gígabita hraða og nú ætlum við að bjóða öllum þeim sem geta tengst okkar ljósleiðara upp á 10 gígabita hámarkshraða. Við höfum alltaf talað fyrir því að heimilin eigi að vera með mikla bandbreidd og að aðgangur að netinu eigi að vera hnökralaus og hraður. Það er því ákaflega ánægjulegt að geta boðið þessa þjónustu á öllu okkar þjónustusvæði frá og með næstu mánaðarmótum.“
Til þess að panta TÍU GÍG hefur þú samband við þitt fjarskiptafyrirtæki.
Nánari upplýsingar um þjónustuna má finna hér.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.