Glæsilegur lokasprettur í Ljósleiðaradeildinni

24. nóvember 2026

Úrslit Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike réðust í spennandi úrslitaviðureign um nýliðna helgi á milli Dusty og Þór Akureyri. Þar stóð Dusty uppi sem sigurvegari og hampaði því titlinum Íslandsmeistarar Ljósleiðaradeildarinnar 2026. Mikil stemning ríkti á úrslitakvöldinu þar sem rafíþróttaáhugafólk kom saman í Next Level Gaming til að fylgjast með keppninni.

Ljósleiðarinn hefur verið aðalstyrktaraðili Rafíþróttasambands Íslands frá árinu 2022 og styrkir Ljósleiðaradeildina þar sem keppt er í Counter-Strike. Samstarfið er liður í því að styðja við uppbyggingu rafíþrótta á Íslandi og skapa öflugan vettvang fyrir keppendur og áhugafólk um rafíþróttir.

Öflugar og áreiðanlegar nettengingar eru ein af forsendum rafíþrótta, þar sem hraði, stöðugleiki og lág svartíðni geta skipt sköpum. Ljósleiðarinn leggur áherslu á að tryggja fyrsta flokks fjarskiptainnviði sem mæta sívaxandi kröfum samfélagsins. Með samstarfinu við Rafíþróttasamband Íslands vill Ljósleiðarinn leggja sitt af mörkum til áframhaldandi vaxtar rafíþrótta hér á landi og styðja við samfélag sem einkennist af metnaði, samkeppni og sameiginlegum áhuga á tölvuleikjum.

Ljósleiðarinn óskar Dusty innilega til hamingju með sigurinn og þakkar öllum keppendum, skipuleggjendum og áhorfendum fyrir frábæra keppni.

Við hlökkum til að taka aftur upp þráðinn í deildinni eftir áramótin.

 

 

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.