Gestir Vísindavöku spreyttu sig á Ljósleiðaraþrautum
6. október 2026
6. október 2026
Á dögunum tók Ljósleiðarinn, ásamt öðrum fyrirtækjum Orkuveitunnar, þátt í Vísindavöku og þar bauðst gestum að kynnast tækninni sem tengir fólk, atvinnulíf og tækifæri. Vísindavaka er mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki á borð við Ljósleiðarann. Þar gefst tækifæri til að kynna starfsemi fyrirtækisins, vekja áhuga á tækni og nýsköpun og sýna hvernig tæknilegir innviðir hafa áhrif á daglegt líf fólks. Fyrir Ljósleiðarann er jafnframt mikilvægt að vekja áhuga ungs fólks á tæknigreinum og sýna fjölbreytileika starfa sem tengjast uppbyggingu, rekstri og þróun fjarskiptainnviða. Með því að opna glugga inn í heim tækninnar má skapa forvitni, hvetja til náms og leggja grunn að næstu kynslóð sérfræðinga.
Á sýningarsvæði Ljósleiðarans gátu gestir skoðað ýmis tæki og tól sem notuð eru við uppbyggingu og rekstur ljósleiðarakerfisins. Starfsfólk okkar átti mörg góð samtöl við gesti, svaraði spurningum og útskýrði hvernig ljósleiðaratæknin flytur upplýsingar með hraða og áreiðanleika sem nútímasamfélagið reiðir sig á á hverjum degi. Gestir á öllum aldri sýndu tækninni mikinn áhuga og fengu tækifæri til að kynnast ljósleiðarainnviðunum.
Ljósleiðarinn bauð gestum einnig að spreyta sig á spurningaleik þar sem reyndi á þekkingu á ljósleiðaratækni og starfsemi fyrirtækisins. Ein af spurningunum sem reyndist hvað erfiðust sneri að sjálfum innviðunum sem tengja samfélagið saman: Hversu margir kílómetrar af ljósleiðaraþráðum liggja um Ísland? Fáir gera sér grein fyrir umfangi kerfisins sem er nánast ósýnilegt og liggur undir jörðu eða inn í veggjum en í raun teygir ljósleiðaranetið sig nánast um 300.000 kílómetra um landið og þetta hálfósýnilega en gríðarstóra kerfi gegnir lykilhlutverki í daglegum samskiptum landsmanna.
Einn heppinn þátttakandi sem komst næst því að svara öllum spurningunum rétt stóð uppi sem sigurvegari og hlaut stútfullan gjafapoka frá Ljósleiðaranum með ýmsu góðgæti og gjafabréfum!
Við þökkum öllum þeim sem komu við á sýningarsvæðinu okkar og tóku þátt í spjalli og fræðslu. Það var virkilega ánægjulegt að finna þann áhuga sem gestir sýndu tækninni og hlutverki Ljósleiðarans í nútíma samfélagi.





Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.