Efnahagur styrkist og traust tök á rekstri
22. febrúar 2023
22. febrúar 2023
Ársreikningur Ljósleiðarans 2022, sem samþykktur var af stjórn í dag, endurspeglar að mikilvægt fjárfestingaár er að baki hjá fyrirtækinu og reksturinn í traustum farvegi. Verðmæti heildareigna Ljósleiðarans jókst um tæplega 3,9 milljarða króna, eiginfjárhlutfall hækkaði frá fyrra ári og var 40,4% í árslok 2022.
Framlegð rekstursins – EBITDA – óx á milli ára og var, eins og fyrri ár, nýtt til fjárfestinga og áframhaldandi vaxtar fjarskiptakerfis Ljósleiðarans. Tekjur jukust um 13% milli ára og launakostnaður dróst saman. Fjármagnskostnaðurinn vex hinsvegar verulega vegna verðbólgu og vaxtahækkana og hefur neikvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins.
Ársreikningur Ljósleiðarans 2022 er í viðhengi.
Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans:
Rekstur Ljósleiðarans gekk vel á árinu 2022 og var tekjuvöxtur og rekstrarhagnaður umfram áætlanir. Mikil verðbólga og hækkun vaxta hafði hins vegar talsverð áhrif á afkomu félagsins og varð til þess að félagið skilaði 87 m.kr. tapi á árinu. Rekstrarhorfur fyrir árið 2023 eru góðar en hár fjármagnskostnaður mun áfram hafa talsverð áhrif, sérstaklega í ljósi þess að nauðsynlegt er að byggja upp og fjárfesta til að mæta nýjum áskorunum á fjarskiptamarkaði og tengja allt það nýja húsnæði sem er í byggingu.
Talsverðar breytingar urðu á fjarskiptamarkaði á árinu 2022. Stærsta innviðafyrirtæki landsins komst í erlenda eigu á sama tíma og hernaðarátök í Evrópu beindu sjónum mjög að fjarskiptaöryggi. Ljósleiðarinn tók stór skref einmitt til eflingar fjarskiptaöryggis með leigu á þráðum í NATO-ljósleiðaranum umhverfis landið og samningum við Farice og Nova. Þá var samið um kaup á stofnneti Sýnar og gerður 12 ára þjónustusamningur við fyrirtækið, hvorttveggja í því skyni að efla öryggi fjarskipta innanlands og tryggja að Ljósleiðarinn væri áfram samkeppnishæfur á breyttum fjarskiptamarkaði, almenningi til hagsbóta. Samningarnir við Sýn voru gerðir með fyrirvara um staðfestingu Samkeppniseftirlitsins. Kaupin á stofnnetinu hafa þegar verið fjármögnuð en fjármagnsskipan Ljósleiðarans er nú til umfjöllunar hjá eigendum OR.
Um Ljósleiðarann
Ljósleiðarinn ehf. er fjarskiptafélag á heildsölumarkaði í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, stofnað árið 2007. Hlutverk Ljósleiðarans er stuðla að heilbrigðri samkeppni á fjarskiptamarkaði með því að veita íslenskum heimilum og fyrirtækjum aðgang að hágæða þjónustu á opnu aðgangsneti.
Helstu niðurstöður úr ársreikningi Ljósleiðarans árið 2022:
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.