Breyting á gjaldskrá Ljósleiðarans
20. október 2022
20. október 2022
1. janúar næstkomandi mun aðgangsgjald fyrir Ljósleiðarann breytast og verða 3.687 kr. m. vsk. í stað 3.580 kr. m. vsk. nú, sem er hækkun um 3%
Frá janúar 2007 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 108,8%, á sama tíma hefur aðgangsgjald Ljósleiðarans aðeins hækkað um 54,9%, að teknu tillit til hækkunar sem verður 1. janúar. Á sama tíma hefur hraði á Ljósleiðaranum tífaldast.
Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.