Auknar tekjur og minni rekstrarkostnaður hjá Ljósleiðaranum

27. febrúar 2026

Umsvif Ljósleiðarans jukust talsvert á árinu 2025 og afkoma rekstursins batnaði. Tekjur jukust um 5,8%, rekstrarkostnaður lækkaði um 6,8% og EBITDA jókst um 16,9%. Vöxtinn milli ára má einkum rekja til fjölgunar heimilistenginga. Verulegur fjármagnskostnaður íþyngir þó afkomunni. Tap ársins 2025 nam 340 mkr. en hefur meira en helmingast frá árinu 2024. Þar skipti talsverðu sá árangur að snemma árs 2025 var gerður hagkvæmur fjármögnunarsamningur við Norræna fjárfestingabankann.

Ársreikningur Ljósleiðarans vegna ársins 2025 var samþykktur af stjórn í dag. Ljósleiðarinn, sem er alfarið í eigu Orkuveitunnar, rekur víðfeðmt og nútímalegt fjarskiptanet sem þjónar heimilum, fyrirtækjum og fjarskiptafélögum í landinu.

Þuríður Björg Guðnadóttir, framkvæmdastýra Ljósleiðarans:

„Ljósleiðarinn er leiðandi afl í uppbyggingu grunninnviða fjarskipta á Íslandi og ætlar að vera það áfram. Við stefnum í rétta átt hvorttveggja hvað varðar fjölgun viðskiptavina og eflingu tæknilegra innviða fyrirtækisins, sem jafnframt eru innviðir samfélagsins. Að Ljósleiðarinn sé áfram burðarás í íslenskum fjarskiptum er lykilforsenda þess að efla samkeppni, tryggja öfluga innviði og skapa langtímaverðmæti fyrir samfélagið í heild.“

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.