Allt þéttbýli í Mosfellsbæ komið í samband við Ljósleiðarann

2. september 2019

Allt þéttbýli í Mosfellsbæ komið í samband við Ljósleiðarann

Lokið er tengingu allra heimila í þéttbýli Mosfellsbæjar við Ljósleiðarann. Af þessu tilefni afhenti Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra skjöld til vottunar á þessum áfanga í uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu.
Fleiri áfangar eru framundan því í vor samþykkti bæjarráð samning við Fjarskiptasjóð um stuðning við ljósleiðaratengingu í dreifbýli sveitarfélagsins.

Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur fagnar þessum áfanga.
„Þetta er mikilvægt skref í uppbyggingu nútímasamfélaga að hafa svo trausta innviði fyrir gagnaflutninga af öllu tagi sem Ljósleiðarinn er. Nú eiga heimilin í bænum kost á þjónustu sem er einhver sú besta sem býðst á byggðu bóli,“
segir Erling og óskar Mosfellsbæingum til hamingju með áfangann.

Eitt gíg í boði 
Öllum heimilum í þéttbýli Mosfellsbæjar stendur nú til boða Eitt gíg gæðasamband Ljósleiðarans, sem gefur kost á 1.000 megabitum bæði til og frá heimili. Það er öflugasta nettenging sem býðst á almennum heimilismarkaði hér á landi og þó víðar væri leitað.
Flest stærstu fjarskipta- og afþreyingarfyrirtæki landsins bjóða þjónustu sína um Ljósleiðarann og viðskiptavinum stendur til boða val á milli fjölmargra þjónustuleiða Vodafone, Nova, Hringdu og Hringiðunnar.

Ein heimsókn og allt tengt
Uppsetning á ljósleiðara alla leið inn á heimili er íbúum að kostnaðarlausu og síðan er greitt mánaðargjald fyrir notkun.
Sérfræðingar Ljósleiðarans tengja bæði ljósleiðarabox og allan búnað sem þarf netsamband, allt í einni heimsókn til að draga úr raski og ónæði.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.