Komdu í gæðasamband við framtíðina
Með tengingu við Ljósleiðarann færðu hraðan, öruggan og hnökralausan aðgang að þéttu neti ljósleiðaraþráða. Þannig getur þú streymt hágæðaefni í fjölda tækja á heimilinu á sama tíma.
Fyrir utan aukinn hraða á hinu hefðbundna netvafri þá eykur ljósleiðarinn gæði fjarfunda og myndsímtala umtalsvert. Myndgæði í sjónvarpi aukast til muna og snerpa í netleikjum verður enn betri. Ljósleiðarinn tengir jafnframt heimasímann og öryggiskerfi heimilisins.