1. Tilgangur og umfang
1. Að lýsa fyrirkomulagi við boðun stjórnarfunda félagsins.
2. Boðun stjórnarfunda
2. Fundarboð skal vera skriflegt og tilgreina fundarstað, fundartíma og dagskrá fundarins. Að jafnaði skulu þeir haldnir í húsnæði félagsins.
2.1 Tíðni stjórnarfunda
3. Stjórnarfundir skulu að jafnaði haldnir mánaðarlega í samræmi við starfsáætlun stjórnar eða þegar stjórnarformaður ákveður. Stjórnarformanni ber að kalla saman stjórnarfund ef einhver stjórnarfólks, framkvæmdastjóri eða endurskoðandi krefst þess. Stjórnarfundir skulu að jafnaði haldnir í húsnæði fyrirtækisins.
2.2 Fyrirvari við fundarboð
5. Að jafnaði skal boða til stjórnarfundar með tveggja daga fyrirvara með tölvupósti á tölvupóstfang sem stjórnarmaður gefur upp, en að auki má boða til stjórnarfunda með bréfi eða símleiðis. Stjórnarformaður getur þó ákveðið skemmri frest telji hann það óhjákvæmilegt vegna sérstakra aðstæðna. Dagskrá stjórnarfundar og helstu gögn skulu vera aðgengileg stjórnarmönnum þegar boðað er til fundar.
2.3 Forföll stjórnarmanna/stjórnarformanns
7. Við forföll aðalmanns á stjórnarfundi skal kallaður til varamaður. Forfallist stjórnarformaður skal varaformaður stýra fundi í hans stað.
2.4 Undirbúningur dagskrármála
8. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á undirbúningi stjórnarfunda. Stjórnarfólk, framkvæmdastjóri og aðrir sem starfa í umboði stjórnar hafa heimild til að leggja fram dagskrármál á stjórnarfundum. Tillögur til stjórnar ásamt greinargerð skulu settar fram á þar til gerðu eyðublaði í rekstrarhandbók.
2.5 Ákvarðanir milli stjórnarfunda
9. Nú telur formaður ekki stætt á því vegna sérstakra aðstæðna að bíða þess að haldinn verði stjórnarfundur og getur hann þá tekið ákvörðun um símafund stjórnar eða að málefnið verði kynnt stjórnarfólki rafrænt og haldin verði rafræn atkvæðagreiðsla meðal stjórnarfólks, t.d. með tölvupósti. Ákvarðanir sem þannig eru teknar skulu lagðar fyrir næsta stjórnarfund til staðfestingar.
2.6 Ákvörðun um næsta stjórnarfund
10. Í lok hvers stjórnarfundar skal að jafnaði tekin ákvörðun um hvenær næsti stjórnarfundur skuli haldinn.