Skil­málar Fyr­ir­tækja

1. ALMENNT

  1. Skilmálar þessir gilda fyrir notkun fyrirtækja á ljósleiðarasamböndum í Ljósleiðaraneti Ljósleiðarans ehf.
  2. Ljósleiðarasamband er óvirkjuð gagnaflutningsleið milli tveggja tengistaða (e. dark fiber).
  3. Ljósleiðarinn ehf. áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálum þessum og eru slíkar breytingar kynntar á vefsíðunni ljosleidarinn.is  með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara.
  4. Viðskiptavinur er rétthafi ljósleiðarasambanda og ber ábyrgð á notkun þeirra skv. kafla 2.
  5. Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á greiðslum til Ljósleiðarans ehf. vegna notkunar á ljósleiðarasamböndum skv. kafla 3.
  6. Ljósleiðarinn ehf. ábyrgist ekki tjón sem rekja má til sambandsleysis, rofs á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskiptakerfis Ljósleiðarans ehf. eða þjónustuaðila, hvort sem slíkt má rekja til ljósleiðarabilana, bilana í netbúnaði eða annarra ástæðna.

2.    NOTKUN

  1. Óheimilt er að tengja búnað við ljósleiðaranet Ljósleiðarans ehf. nema hann uppfylli kröfur Póst- og fjarskiptastofnunar.
  2. Óheimilt er að tengja búnað sem framkallar bylgjulengdarfléttun  (e. Wavelength –Division – Multiplexing) við ljósleiðaranet Ljósleiðarans ehf. nema annað sé tiltekið í samningi og gildir þá að:
    1. Val á búnaði til bylgjulengdarfléttunar er á ábyrgð viðskiptavinar.
    2. Ljósleiðaranum ehf. er heimilt að kanna fjölda bylgja og búnað sem er í notkun.
  3. Búnaður viðskiptavinar þarf að taka mið af útreiknaðri deyfingu ljósleiðarasambands á tiltekinni bylgjulengd sem afhent er ásamt mælingu við afhendingu sambands.
  4. Verði bilun á ljósleiðarasambandi skal hún tilkynnt til Ljósleiðarans ehf. í þjónustunúmer 516 7777. Tilkynni viðskiptavinur um bilun í ljósleiðarasambandi og í ljós kemur að ekki er um bilun í ljósleiðarasamböndum eða búnaði Ljósleiðarans ehf. að ræða innheimtir Ljósleiðarinn ehf. kostnað vegna útkalls og tæknivinnu skv. gildandi gjaldskrá Ljósleiðarans ehf. á hverjum tíma.

3.    GREIÐSLUR

  1. Gjalddagi mánaðargjalds er fimmti hvers mánaðar. Gjalddagi og eindagi reiknings er sá sami.
  2. Viðskiptavinur skal greiða fyrir útskrift greiðsluseðla, svokallað seðilgjald, skv. gjaldskrá Ljósleiðarans ehf. nema hann óski þess að reikningur sé skuldfærður eftir rafrænum greiðsluleiðum og er þá enginn greiðsluseðill sendur út.
  3. Sé reikningur greiddur eftir gjalddaga greiðir viðskiptavinur dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags skv. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 auk alls kostnaðar sem af innheimtu kröfunnar hlýst.
  4. Skráður rétthafi er ábyrgur fyrir greiðslu mánaðargjalds, lagnagjalds og annarra gjalda sem tilgreind eru í samningi.
  5. Séu greiðslur í vanskilum 45 dögum eftir gjalddaga er heimilt að loka þeim ljósleiðarasamböndum sem vanskil ná til.
  6. Ef ætla má vegna framkominna atvika að kaupandi geti ekki greitt skuldir sínar á gjalddaga þeirra, er heimilt að loka ljósleiðarasambandinu fyrirvaralaust, nema kaupandi setji fram fullnægjandi tryggingu fyrir skuldinni og væntanlegri notkun á yfirstandandi afnotatímabili.
  7. Athugasemdir við reikninga skulu berast eins fljótt og auðið er á netfangið: ljosleidarinn@ljosleidarinn.is eða í síma 516-7777.
  8. Öll verð taka breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs þann 1. janúar og 1. júlí ár hvert, nema annað sé tiltekið í samningi.
  9. Uppsögn skal vera skrifleg og gerð með mánaðar fyrirvara sem telst frá næstu mánaðamótum eftir að uppsögn berst nema annað sé tiltekið í samningi.

4.    ÖNNUR ÁKVÆÐI

  1. Um fjarskiptaþjónustu gilda lög um fjarskipti nr. 81/2003 ásamt síðari breytingum. Brot á lögum og reglum Póst- og fjarskiptastofnunar getur valdið tafarlausri lokun á þjónustu.