Ljósleiðarinn er á leiðinni til Reykjanesbæjar

5. apríl 2018

Ljósleiðarinn í Reykjanesbæ

Gagnaveita Reykjavíkur og Reykjanesbær hafa gert með sér samkomulag um ljósleiðaravæðingu í bænum. Þeir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur hafa skrifað undir viljayfirlýsingu þessa efnis. Samkvæmt henni stefnir Gagnaveita Reykjavíkur að því að ljúka tengingu við Ljósleiðarann í hverfunum Keflavík, Njarðvík, Ásbrú og Höfnum fyrir árslok 2021.

Reykjanesbær hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um ljósleiðaravæðingu

Verkefnið kynnt á Framkvæmdaþingi

Reykjanesbær er í miklum vexti og er nú fimmta fjölmennasta sveitarfélag landsins með um 18.000 íbúa. Þetta kallar á mikla uppbyggingu og sveitarfélagið gengst fyrir Framkvæmdaþingi mánudaginn 9. apríl í Hljómahöll. Nánari upplýsingar um þingið er að finna á vef Reykjanesbæjar. Verkefni Ljósleiðarans verður á meðal framkvæmdanna sem þar verða kynntar.

Ljósleiðaraverkefnið verður á meðal framkvæmdanna sem þar verða kynnt. Íbúar í Reykjanesbæ geta líka sjálfir haft áhrif á í hvaða röð hverfi og byggðarkjarnar verða tengdir Ljósleiðaranum. Það gera þeir með því að lýsa yfir vilja til að tengjast Ljósleiðaranum.

Samstarf um uppbygginguna

Samhliða samkomulaginu við Reykjanesbæ hefur Gagnaveita Reykjavíkur auglýst eftir samstarfsaðilum. Samstarfið getur verið meðal annars:

  • að selja GR fjarskiptalagnir sem fyrir eru í sveitarfélaginu og nýst geta við ljósleiðaravæðinguna, eða
  • með samnýtingu framkvæmda með öðrum veitufyrirtækjum, fjarskiptafyrirtækjum eða sveitarfélaginu sjálfu.

Gagnaveita Reykjavíkur auglýsir eftir samstarfsaðilum í þessa veru, og geta áhugasamir aðilar kynnt sér málið frekar hér.

Eitt gíg í boði

Heimili í þessum byggðarkjörnum munu standa til boða Eitt gíg gæðasamband Ljósleiðarans, sem gefur kost á 1000 megabitum bæði til og frá heimili.

Flest stærstu fjarskipta- og afþreyingarfyrirtæki landsins bjóða þjónustu sína um Ljósleiðarann og viðskiptavinum stendur til boða val á milli fjölmargra þjónustuleiða Vodafone, Nova, 365, Hringdu og Hringiðunnar.

Reykjanesbær mótar framtíðina  – Ljósleiðaravætt Ísland

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar komu Ljósleiðarans. „Ljósleiðarinn mun ekki einungis færa heimilum bæjarins öflugt netsamband, heldur einnig eiga þátt í því að smyrja hjól atvinnulífsins með því að styrkja stoðir nýsköpunar og frumkvöðlastarfs. Reykjanesbæjar bíður björt framtíð og enn frekar með traustum innviðum,“ segir Kjartan Már.

Þessi tenging íbúa í sveitarfélaginu við opið net Ljósleiðarans styður við markmið stjórnvalda um ljósleiðaravæðingu alls Íslands. Verkefnið í Reykjanesbæ er alfarið á viðskiptalegum forsendum og ekki er sótt um ríkisstyrki vegna hennar.

Lokið við höfuðborgarsvæðið 2018

Nú sér fyrir endann á verkefnum Gagnaveitu Reykjavíkur við uppbyggingu Ljósleiðarans í þéttbýlinu á höfuðborgarsvæðinu. Á þessu ári verður lokið við að tengja hús í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Jafnframt er unnið að ljósleiðaravæðingu Borgarness og fleiri byggðakjarna í Borgarbyggð.

Við höfum lengi haft augastað á ljósleiðaravæðingu Reykjanesbæjar. Nýlega lögðum við stofnstreng suður eftir sem opnar á stækkun þjónustusvæði Ljósleiðarans á Reykjanesi.“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.

Nú þegar eru um 89 þúsund heimili tengd opnu neti Ljósleiðarans. Það eru um 65% allra heimila í landinu. Áætlað er að 6 þúsund heimili bætist við á þessu ári. Árið 2021, þegar stefnt að því að tengingum með samkomulaginu við Reykjanesbæ og nýlegu samkomulagi við Árborg verði lokið, er reiknað með að um 113 þúsund heimili eigi kost á þjónustu Ljósleiðarans.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.