Ljósleiðari til heimila í Borgarnesi og á Hvanneyri

6. október 2015

Stjórnendur Gagnaveitu Reykjavíkur (GR) og Borgarbyggðar skrifuðu sl. föstudag undir viljayfirlýsingu um samstarf við ljósleiðaravæðingu heimila í þéttbýli Borgarbyggðar. GR ætlar að tengja öll heimili í þéttbýliskjörnunum í Borgarnesi og á Hvanneyri á árunum 2016 til 2018. Um 900 heimili í Borgarnesi verða tengd Ljósleiðaranum og um 80 á Hvanneyri.
Ljósleiðarastrengur GR liggur nú þegar í gegnum sveitarfélagið, að Hvanneyri og í gegnum Borgarnes að skólasamfélaginu á Bifröst.

Í hóp framsæknustu þéttbýlisstaða

„Sveitarstjórn Borgarbyggðar ákvað að stíga þetta framfaraskref til að stuðla að auknu aðgengi íbúa Borgarbyggðar að þeim lífsgæðum sem felast í hraðvirkum fjarskiptum. Öflug nettenging er á meðal mikilvægustu hagsmunamála landsbyggðar í dag og Ljósleiðarinn er okkar svar. Borgarnes og Hvanneyri skipa sér með þessu í hóp framsæknustu þéttbýlisstaða á landinu,“ segir Kolfinna Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar

GR mun fjármagna uppbyggingu og rekstur Ljósleiðarans og verður verðlagning á þjónustu til heimila í Borgarbyggð sambærileg og annarsstaðar þar sem GR hefur byggt upp ljósleiðarakerfi. Í framlagi Borgarbyggðar til samstarfsins felst að bærinn veitir GR aðgang að landi og framkvæmdaheimildum.

100 til 500 megabita hraði í báðar áttir

„Hlutverk GR er að auka lífsgæði íbúa og samkeppnishæfni fyrirtækja en GR hefur verið í forystu í fjarskiptum á Íslandi með uppbyggingu Ljósleiðarans. GR leggur einn þráð inn á hvert heimili og setur upp endabúnað sem nú ræður við gagnahraða í báðar áttir sem nemur einu gígabiti á sekúndu. Ýmis fjarskiptafyrirtæki veita síðan viðskiptavinum þjónustu um strenginn. Nú eru þau farin að bjóða 100 til 500 megabita flutningshraða. Engin önnur fjarskiptatenging til heimila gefur kost á slíkum hraða í dag,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri GR.

Ljósleiðarinn frá GR byggir á opnu neti og hægt er að kaupa þjónustu um hann af mörgum fjarskiptafélögum. Það eykur fjölbreytni og samkeppni innan kerfisins. Söluaðilar á þjónustu um Ljósleiðarann eru Vodafone, Hringdu, Hringiðan, 365 og Símafélagið. Grunnhugsunin er að viðskiptavinurinn hafi úr mörgu að velja á opnu neti Gagnaveitu Reykjavíkur.

Ljósleiðaravæðing í dreifbýli í undirbúningi

Borgarbyggð undirbýr jafnframt ljósleiðaravæðingu í dreifbýli. Búið er að samþykkja að gera könnun í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi með það að markmiði að greina umfang verkefnisins í sveitum. Sveitarfélagið áformar að vera vel undirbúið þegar fyrir liggur niðurstaða um fjárveitingar í landsátak ríkisstjórnarinnar í ljósleiðaravæðingu. Það er mikilvægt að sem flestir íbúar taki þátt í könnun SSV þegar hún verður send út. Við bindum miklar vonir við áform ríkisstjórnarinnar en það er ljóst að ljósleiðaravæðingu í dreifbýli þarf að vinna í samstarfi við opinbera aðila segir Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri. Við höfum einnig átt mjög gott samstarf við Vodafone en þeir hafa unnið að því að styrkja verulega háhraðaþjónustu með uppsetningu á 4G sendum í sveitarfélaginu, nú síðast á Rauðamelskúlu sem eflir verulega háhraðasamband á sunnanverðu Snæfellsnesi, á Mýrum, í Hnappadal og víðar.Við erum afar ánægð með þann mikla áhuga sem fjarskiptafyrirtæki hafa sýnt okkar svæði. Þetta er grunnforsenda búsetu í nútímasamfélagi og styður allan vöxt og uppbyggingu á svæðinu til framtíðar segir Kolfinna.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.