Heimili í Kópavogi fá 1 gígabit/sekúndu samband á afmælisári sínu

27. maí 2015

Kópavogsbær og Gagnaveita Reykjavíkur hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um aukinn uppbyggingarhraða Ljósleiðarans í bæjarfélaginu. Allir nýir viðskiptavinir Gagnaveitu Reykjavíkur í Kópavogi munu fá  búnað sem ræður við 1 Gb/s gagnahraða. Með þessu er Gagnaveitan að koma Kópavogsbæ í fremstu röð bæjarfélaga í fjarskiptum en 64% heimila í  munu í lok árs hafa aðgengi að hraðasta Interneti á Íslandi. Ljósleiðaravæðingu bæjarins lýkur síðan fyrir lok ársins 2017 en þá munu öll heimili í bænum hafa aðgengi að Ljósleiðaranum.

,,Þetta eru góð tíðindi á afmælisári bæjarins.  Við erum ánægðir með að Gagnaveitan hafi komið til móts við óskir okkar í Kópavogsbæ um að hraða uppbyggingu ljósleiðara til þess að svara þörf okkar á hraðari gagnaflutningum. Ljósleiðarinn er lykill að skjótum og greiðum viðskiptum og samskiptum í atvinnulífi, ásamt því að vera tækni sem eykur lífsgæði almennings. Hraðari gagnaflutningar hjálpa okkur einnig við að ná markmiðum í spjaldtölvuvæðingu skóla bæjarins,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.

Það var af mikilli framsýni sem farið var í ljósleiðaravæðingu til heimila á Íslandi fyrir um 10 árum síðan. Í árslok 2015 munu 70.000 heimili á Íslandi verða tengd Ljósleiðaranum og hefur mikil ánægja verið með hann hjá viðskiptavinum. Nú þegar er Ísland á meðal tíu efstu þjóða Evrópu í dreifingu á ljósleiðara með 55% heimila sem hafa aðgengi að öflugum ljósleiðara.

,, Ljósleiðarinn er nauðsynlegur fyrir þá byltingu sem framundan er í snjallvæðingu heimila. Með ljósleiðara Gagnaveitunnar ná viðskiptavinir hröðustu tengingu á Íslandi. Þjónusta sjónvarpsveitna og miðlun myndefnis af öllu tagi kallar á öflugra og hraðara netsamband. Gagnaveita Reykjavíkur er vel í stakk búin til að svara þessu kalli og horfir enn lengra fram á veginn í þessari tæknivæðingu. Þannig fylgjum við eftir þeirri þróun sem á sér stað hjá framsæknustu gagnaveitum heims,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur. 

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.