Guðmundur og Regína til Gagnaveitu Reykjavíkur

4. nóvember 2020

Guðmundur Jóhann Arngrímsson og Regína Björk Jónsdóttir hafa verið ráðin í tækniþjónustu- og afhendingardeild Gagnaveitu Reykjavíkur (GR) en þau búa bæði þau yfir víðtækri reynslu úr fjarskiptabransanum.  

Regína starfaði áður sem viðskiptastjóri hjá Nova en hún er vottaður fjármálaráðgjafi úr Opna háskólanum í Reykjavík frá árinu 2017 auk þess sem hún nam viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík.  

Guðmundur starfaði sem  verslunarstjóri hjá Vodafone. Hann leggur stund á fjarnám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.  

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá þau Guðmund og Regínu til starfa og bæta þannig enn meiri þekkingu og hæfni við þann frábæra mannauð sem vinnur nú þegar hjá Ljósleiðaranum.“ segir Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur. 

Með ráðningum Guðmundar og Regínu mun GR auka þjónustu sína við viðskiptavini á einstaklings – og fyrirtækjamarkaði.  Þau Guðmundur og Regína hafa bæði hafið störf.  

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.