Breyting á gjaldskrá Ljósleiðarans

23. nóvember 2021

1. janúar næstkomandi mun aðgangsgjald fyrir Ljósleiðarann breytast og verða 3.531 kr. m. vsk. í stað 3.445 kr. m. vsk. nú, sem er hækkun um 2,5%

Frá janúar 2007 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 90,4%, á sama tíma hefur aðgangsgjald Ljósleiðarans aðeins hækkað um 48,3%, að teknu tillit til hækkunar sem verður 1. janúar. Á sama tíma hefur hraði á Ljósleiðaranum tífaldast.

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.