Allt þéttbýli í Hafnarfirði komið í samband við Ljósleiðarann

15. apríl 2020

Lokið er tengingu allra heimila í þéttbýli Hafnarfjarðar við Ljósleiðarann. Af þessu tilefni afhenti Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra skjöld til vottunar á þessum áfanga í uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu.

Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur fagnar þessum áfanga. „Þetta er mikilvægt skref í uppbyggingu nútímasamfélaga að hafa svo trausta innviði fyrir gagnaflutninga af öllu tagi sem Ljósleiðarinn er. Nú eiga heimilin í bænum kost á þjónustu sem er einhver sú besta sem býðst á byggðu bóli,“ segir Erling og óskar Hafnfirðingum til hamingju með áfangann. 

„Við fögnum þessum áfanga í uppbyggingu okkar innviða sem talar í takt við markmið okkar og stefnu um enn meiri snjallvæðingu og rafrænar lausnir á fjölbreyttu sviði. Við erum að endurhugsa ferla, flæði og lausnir sem lið í stafrænni vegferð. Næsta skref verður að tryggja tengingar stofnana og fyrirtækja í sveitarfélaginu og ég veit að sú vegferð er hafin í góðu samstarfi allra hlutaðeigandi aðila“ 
segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar sem er að vonum ánægð með þessa uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu sem tekið hefur um þrjú ár.

Eitt gíg í boði – ein heimsókn og allt tengt

Öllum heimilum í þéttbýli Hafnarfjarðar stendur nú til boða Eitt gíg gæðasamband Ljósleiðarans, sem gefur kost á 1.000 megabitum bæði til og frá heimili. Það er öflugasta nettenging sem býðst á almennum heimilismarkaði hér á landi og þó víðar væri leitað. Flest stærstu fjarskipta- og afþreyingarfyrirtæki landsins bjóða þjónustu sína um Ljósleiðarann og viðskiptavinum stendur til boða val á milli fjölmargra þjónustuleiða. Uppsetning á ljósleiðara alla leið inn á heimili er íbúum að kostnaðarlausu og síðan er greitt mánaðargjald fyrir notkun. Sérfræðingar Ljósleiðarans tengja bæði ljósleiðarabox og allan búnað sem þarf netsamband, allt í einni heimsókn til að draga úr raski og ónæði. 

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.